Onboard
Back to all jobs

Starf í þjónustuveri Stafrænnar heilsu

Heilbrigðisráðuneytið · Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík

IT operations Mid-level
Posted
Application deadline
Apply on company site

Stafræn heilsa leitar að lausnamiðuðum og jákvæðum einstaklingi með ríka þjónustulund til starfa í þjónustuveri. Þjónustuverið sinnir allri framlínu- og notendaþjónustu á sviði upplýsingatækni Stafrænnar heilsu, ásamt daglegum rekstri og vöktun tæknilegra innviða.

Hjá Stafrænni heilsu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga á sviði upplýsinga- og heilbrigðistækni að margvíslegum og spennandi verkefnum. Markmið Stafrænnar heilsu er að leiða þróun og þjónustu stafrænnar heilbrigðisþjónustu á landsvísu og að veita framúrskarandi þjónustu við heilbrigðisstofnanir. Stafræn heilsa er skrifstofa í heilbrigðisráðuneytinu og heyrir undir stjórn þess.

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Tækni- og notendaþjónusta í síma og á vettvangi

·       Greining, skráning og úrlausn erinda í beiðnakerfum

·       Aðstoð við notendur vegna aðganga, kerfa og tæknibúnaðar

·       Eftirfylgni með erindum og samstarf við önnur teymi við úrlausn flóknari mála

·       Þátttaka í daglegum rekstri og vöktun tæknilegra innviða

·       Þátttaka í umbótastarfi þjónustuversins

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Haldgóð þekking og reynsla af upplýsingatækni

·       Þekking á Microsoft 365 umhverfi

·       Menntun sem nýtist í starfi er kostur

·       Reynsla af sambærilegum störfum er kostur

·       Gott vald á íslensku og ensku

·       Þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum

·       Greiningarhæfni, sjálfstæði og lausnarmiðuð viðhorf

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði.

Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni. Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá, afrit af prófskírteinum og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.  Sótt er um starfið á https://island.is/starfatorg 

Ráðið verður í starfið frá 1. október 2026 en æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst. 

Starfshlutfall er 100% í dagvinnu.

Umsóknarfrestur er til og með 28. september 2026.

Nánari upplýsingar veita Rúna Loftsdóttir, yfirmaður Þjónustuvers Stafrænnar heilsu – runa.loftsdottir@hrn.is