Verkefnastjóri á verkefnastofu
Landspítali · Hringbraut Landspítali , 101 Reykjavík
- Posted
- Application deadline
Verkefnastofa Landspítala leitar að öflugum og framsýnum verkefnastjóra til að leiða fjölbreytt og margþætt verkefni. Teymið heyrir undir skrifstofu forstjóra og starfar þvert á svið spítalans. Ef þú hefur áhuga á að hafa áhrif og stýra verkefnum sem móta heilbrigðisþjónustu framtíðar á Íslandi, þá gæti þetta verið starf fyrir þig.
Við leitum að einstaklingi
-
með mikla greiningarhæfni og tæknilæsi.
-
með framúrskarandi leiðtogahæfileika og getu til að veita þverfaglegum teymum innblástur.
-
með framúrskarandi samskiptahæfileika og getu til að vinna þvert á flóknar skipulagsheildir.
-
með vaxandi hugarfar og metnað fyrir sí- og endurmenntun sem styður við uppbyggingu einstaklings sem og verkefnastofu sem heild.
-
sem sýnir frumkvæði í verki, drifkraft og lausnamiðaða hugsun.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem verkfræði
- Staðfest reynsla og hæfni í faglegri verkefnastjórnun
- Reynsla í hlutverki verkefnastjóra í umfangsmiklum verkefnum og verkefnastofnum
- Kunnátta í kortlagningu ferla og þarfagreiningum
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
- Reynsla af innleiðingum stafrænna lausna er kostur
Starfshlutfall: 100%
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, verkefnastjóri, verkefnastjórnun, sérfræðistörf
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5¿
Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Nánari upplýsingar
Sandra Gestsdóttir
Tölvupóstur: sandrag@landspitali.is