Onboard
Back to all jobs

Ert þú lausnamiðaður sérfræðingur í upplýsingatækni?

Sómi · Gilsbúð 9, 210 Garðabær

IT operations Mid-level
Posted
Application deadline
Apply on company site

Sómi ehf. leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í fjölbreytt starf á sviði upplýsingatækni. Viðkomandi mun hafa umsjón með upplýsingatækniumhverfi félagsins, þjónusta aðra starfsmenn og taka virkan þátt í þróun og innleiðingu nýrra tæknilausna.

Starfið hentar vel einstaklingi sem býr yfir góðri þekkingu á upplýsingatækni, hefur ríka þjónustulund, ánægju af fjölbreyttum verkefnum og vill hafa áhrif á þróun tæknimála hjá fyrirtækinu.

Um framtíðarstarf er að ræða. Vinnutími er alla virka daga frá kl. 08:00 til 16:00.

Helstu verkefni og ábyrgð

·         Umsjón með upplýsingatækniumhverfi félagsins

·         Samvinna og samskipti við birgja og þjónustuaðila á sviði upplýsingatækni

·         Aðstoð og þjónusta við starfsmenn og notendur upplýsinga- og tölvukerfa

·         Þróun og innleiðing nýrra tæknilausna og sjálfvirknivæðing

·         Viðhald, endurbætur og uppbygging á öllu sem snýr að upplýsingatækni

·         Aðstoð við gerð fræðsluefnis

·         Tækifæri til að móta framtíðar upplýsingatækniumhverfi félagsins

·         Önnur tilfallandi verkefni sem yfirmaður leggur til, meðal annars á sviði gæða- og öryggismála

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi, t.d. á sviði kerfisstjórnunar eða tölvunarfræði

·         Framúrskarandi almenn tæknikunnátta er skilyrði

·         Reynsla og áhugi á notkun gervigreindar

·         Reynsla af hugbúnaðarþróun kostur

·         Framúrskarandi kunnátta í íslensku og ensku er skilyrði

·         Sjálfstæð, öguð og skipulögð vinnubrögð

·         Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund

·         Frumkvæði, útsjónarsemi og lausnamiðuð hugsun

·         Hæfni til að forgangsraða verkefnum, vinna undir pressu og bregðast fljótt við óvæntum atburðum

Fríðindi í starfi

Sómi er rótgróið fyrirtæki og leiðandi á sínu sviði. Sómi var stofnað árið 1978 og hefur síðan þá lagt mikið kapp á að bjóða landsmönnum upp á ferskar vörur og góða þjónustu. Sómi hefur einsett sér að vera í fararbroddi á sínum sviði. Það er einungis mögulegt ef allir starfsmenn Sóma leggjast á árarnar og vinna saman sem öflugt teymi. Hjá Sóma starfa um 100 manns. Gildi fyrirtækisins eru: Ferskleiki og stöðug gæði.

Hæfir einstaklingar eru hvattir til að sækja um, óháð kyni, kynþætti, uppruna eða öðrum bakgrunni.