Onboard
Back to all jobs

Business Central ráðgjafi

Wise lausnir ehf. · Hafnarstræti 91, 600 Akureyri

Other Mid-level
Posted
Apply on company site

Við leitum að metnaðarfullum einstakling í fjölbreytt starf ráðgjafa viðskiptalausna á skrifstofur okkar á Akureyri.

Við leitum að lausnamiðuðum einstakling sem hefur áhuga á hröðum heimi upplýsingatækninnar. Mikilvægt er að viðkomandi búi yfir framúrskarandi samskiptahæfni og drifkrafti. 

Ef þú hefur reynslu og þekkingu af því að vinna með Business Central og hefur gaman af því að takast á við áskoranir gæti þetta verið tækifæri fyrir þig.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ráðgjöf til viðskiptavina á Microsoft Business Central
  • Ráðgjöf um notkun kerfa fyrirtækisins
  • Þjónusta, ráðgjöf, þarfagreiningar, ferlagreiningar o.fl.
  • Samskipti við viðskiptavini og virk tengslamyndun

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af notkun Microsoft Business Central eða álíka bókhaldskerfum 
  • Þekking og áhugi á stafrænum lausnum og nýjungum
  • Þekking og reynsla af bókhaldi, afstemmingum og uppgjörum
  • Drifkraftur og frumkvæði

Wise er ört vaxandi þekkingarfyrirtæki, sem sérhæfir sig í stafrænum lausnum og býður yfirgripsmikla þjónustu fyrir fyrirtæki með það að markmiði að veita viðskiptavinum forskot í rekstri þeirra.

Í boði er skemmtilegt starf hjá spennandi fyrirtæki með miklum framtíðartækifærum.

Umsóknarfrestur er til og með  17.september 2026. Umsókninni þarf að fylgja starfsferilskrá. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. 

Nánari upplýsingar veitir Tinni Kári Jóhannesson, mannauðsstjóri (tinni@wise.is)